Heim

Vestur á fjörðum, nánar tiltekið á Kirkjubóli í Bjarnardal, er rekið lítið og heimilislegt gistiheimili.  Bærinn er staðsettur rétt við þjóðveg 60 í Önundarfirði og örstutt er í næstu þéttbýlisstaði.

Bræðurnir Guðmundur Valgeir og Jón Grétar Magnússynir, hafa rekið Kirkjuból frá árinu 2005, ásamt eiginkonum sínum, þeim Friðbjörgu Matthíasdóttur og Hugrúnu Þorsteinsdóttur. Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á góða gistingu í fallegu umhverfi og yfir sumarið skiptumst við á að taka á móti gestum, ásamt góðu aðstoðarfólki.

Þegar komið er til Vestfjarða eru nær endalausir möguleikar á því að upplifa sífellt eitthvað nýtt. Þegar dvalið er á Kirkjubóli er auðvelt að fara þaðan í dagsferðir um Vestfirði og koma aftur að kvöldi.

Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem hugurinn er við söguna, náttúruskoðun, gönguferð, ævintýrlegar grillveislur eða þá bara að slappa af í notalegu umhverfi.

Kirkjuból í Bjarnardal er aðili að Ferðaþjónustu bænda og þar með hluti af öflugum samtökum innan ferðaþjónustu á Íslandi.

Sumaropnun 2010. Næsta sumar verður opið hjá okkur í júni, júlí og ágúst. Utan þess tíma er hægt að leigja húsið í heild sinni í viku eða helgarleigu.

Hafið samband við okkur í síma: 456-7679 - 898-2563 - 866-6099 eða í tölvupóstfang: info@kirkjubol.is

 

Kirkjuból í Bjarnardal - 425 Flateyri - Ísland - Tel: +354 456 7679 - e-mail: info@kirkjubol.is - N 65°58,335 - W23°26,003